|
|
26.10.2006 15:50:05 / Thorsteinn
Ég veit að ég er alveg hættur að blogga og ætla mér ekkert
beinlínis að breita því en ég lennti bara í svo svakalegri
lífsreynslu áðan að ég bara verð að deila henni með heiminum. Ég
var nefnilega að verða bensínlaus og ákvað að stoppa við á Esso í
Ártúnsbrekkunni. Það var ekkert athugavert við ástandið enn sem
komið var, en þetta var líka áður en ég uppgötvaði hversu svangur
ég var. Ég tók mér góðan tíma í að finna eitthvað gómsætt en samt á
góðu verði þar sem maður er nú bara fátækur námsmaður. Þetta tók
alveg góðar 6 mínútur en loksins fann ég hvað mig langaði í. Ég
ákvað að fá mér heilsusamloku frá Sóma og kókómjólk. Ég veit að
sumir eru að hugsa "Afhverju fær hann sér ekki djús í staðinn fyrir
kókómjólk!?!? Kókómjólk passar ekkert við heilsusamloku!" En
einhverja hluta vegna langaði mig bara svakalega í
kókómjólk. Ég gældi við þá hugmynd að fá mér sykurlausa
kókómjólk en gerðist að lokum bara svo djarfur að fá mér venjulega
kókómjólk. Það var ungur maður í afgreiðslunni og
hann leit út fyrir að vera ágætis náungi, en annað átti nú
eftir að koma í ljós. Þegar röðin kom að mér tók ég eftir því
að hann horfði eitthvað einkennilega á mig. Á venjulegum degi hefði
ég ábyggilega ekki gefið þessu gaum en þarna vissi ég að þetta væri
útaf kókómjólkinni. Ég var að spá í að hjóla í hann, eða að
minnsta kosti segja honum að hætta með þessa djöfulsins
fordóma en hætti á síðustu stundu þegar ég sá að 2 krakkar voru á
eftir mér í röðinni. Ég borgaði því bara bensínið, samlokuna
og kókómjólkina og hljóp út. Ég stökk uppí bíl og startaði
honum. Ég gerði mig kláran til að borða samloku, drekka
kókómjólk OG keyra allt í einu. Þetta var ekki mjög sniðugt en
ég gerði mér enganveginn grein fyrir því á þessum tíma. Þegar ég
var lagður af stað, búinn að opna kókómjólkina og búinn að taka
samlokuna úr umbúðunum þá ákvað ég að fá mér bita. Á þessum
tímapunkti var ég búinn að átta mig á því að eitthvað var ekki með
felldu. Eitthvað var rangt, en ég gat ekki séð hvað það var. Ég
hélt því bara áfram að keyra og byrjaði að fá mér bita af
samlokunni alveg grunlaus um hvað mundi gerast
á næstu sekúndum. En þá gerðist það......
Ég tók bita af samlokunni og þá kom í ljós að þetta var
RÆKJUSAMLOKA!!!!
Og ég sem hélt að þetta væri heilsusamloka allan tímann!!
Sjiiiittt.. .
»
19.05.2006 15:09:05 / Thorsteinn
EG ER BUINN I
PROFUM!!  
»
14.05.2006 02:05:54 / Thorsteinn
Í gær var svokallaður "Senior
release day" sem þýðir það að þeir sem þurfa ekki að taka
nein vorpróf (eru "exempt" eins og það kallast) þurfa ekki að
mæta meira í skólann og eru s.s. bara komnir í sumarfrí...Það
er náttúrulega mjööög góður díll og enginn kvartar undan
þessu...eða nánast enginn. Sumir þurfa jú að taka þessi
blessuðu próf. Þetta virkar þannig (Ég ráðlegg
þeim sem hafa eitthvað betra að gera en að
lesa mjög leiðinleg og flókin blogg hætti að lesa hér og
fari beint niður að næstu efnisgrein...þar sleppiði
allaveganna við flókna partinn) að þeir sem eru með yfir
8,3 í meðaleinkunn (en ekki með lægra en 7.5 í neinu) sleppa
við öll vorpróf, eða ef að þú ert með betri meðaleinkunn en
8.3 eftir áramót í ákveðnu fagi, þá sleppuru við það fag.
Sjálfur var ég með 8.5-8.7 í meðaleinkunn eftir áramót þannig
að ég hefði getað sleppt við öll prófin...Ekki er lífið þó
svo auðvelt fyrir hann Þorstein...neinei. Ég var víst með 7.1
í fjórða "markinperiod" í einu fagi(það eru 2 markingperiods
eftir áramót (3 og 4)) sem þýðir að þessi regla gildir ekki
þar sem ég var með 71 (mátti ekki vera með lægra en 75) Ég
var samt með 7.8 í meðaleinkunn í því fagi eftir áramót
samanlagt (3. og 4. "markingperiod" samanlagt). Þetta þýddi
að ég þurfti að nota hina regluna en þar var ég ekki með yfir
8.3 í 2 fögum (var með 8.2 í einu). Þetta er mjög flókið dæmi
en the bottom line is: Ég þarf að vera 1 viku lengur í
skólanum til að taka þessi 2 próf og þarf að mæta á hverjum
degi á meðan flestir aðrir eru komnir í sumarfrí til að fara
í einn tíma á dag. Ég þurfti ekki að mæta í hinn tímann afþví
að við vorum búin að fara yfir allt efni til prófs. Ég þarf
þá að hanga þarna frá 7:30 til 3 alla daga (afþví að ég er
ekki með far heim) bara til þess að fara í einn tíma!!!
Chriiiist 
Jæjja þá er ég búinn að fá mína útrás
...
En fimmtudagskvöldið var samt helvíti
skemmtilegt. 06 árgangurinn kom saman um kvöldið niðrí skóla
til að undirbúa svokallaðan "Senior prank" sem er víst hefð
allra framhaldsskóla hérna úti. þeir sem vita ekki hvað það er
þá er þetta hrekkir sem að útskriftarárgangurinn gerir við skólann.
Þar sem þessi skóli er einkaskóli var ekki farið í neinar öfgar en
við gerðum samt margt sniðugt. Filltum nokkur baðherbergi í
skólanum af uppblásnum blöðrum, fluttum húsgögnin, tölvurnar og
græjurnar úr setustofunni okkar framí anddyri, hengdum nærföt á
fánastöngina, hengdum upp endalaust af plaggötum, bundum skápa
yngri krakkana saman þannig að þeir gátu ekki opnað þá, og fullt af
öðru dóteríi. Svo komu allir í skólann daginn eftir og allt eins og
við skildum við það...og það var ansi skemmtilegt að sjá viðbrögðin
hjá sumum 
Svo fór ég til Virginia Beach í dag með
Ben og Shannon og það var bara mjöög nice. Þetta er svona
klukkutíma akstur en við fórum þetta bara í rólegheitunum enda
enginn að flýta sér. Vorum þarna á ströndinni að chilla í svona 3
tíma þar sem við gerðum allt og ekkert. Mest bara legið og
workað tanið eins og ég var búinn að lofa Árna Ég og Shannon
skemmtum okkur þó við að grafa Ben lifandi og kasta í hann aurum
og hella yfir hann vatni ...En á leiðinni á ströndina sá ég
samt eitt skemmtilegt. Þetta var víst svona umferðarmerki eins og
t.d. myndin af hundum og svona rautt strik yfir myndina til að sýna
að hundar eru bannaðir á þessu svæði. En á þessu skilti var enginn
hundur, langt því frá. Á því stóð "#@!!%&!". Ég var bara
"hvað í andskotanum er þetta" en það var eins gott að
ég hugsaði ekki upphátt afþví að Ben og Shannon sögðu mér svo
hvað þetta þýddi. Það var s.s. bannað með lögum að blóta á þessu
svæði! Þau sögðu mér þetta eins og þetta væri hinn venjulegasti
hlutur, og kannski er þetta ósköp venjulegt fyrir suma,
en sjálfur finnst mér þetta mjööög spes. Svo komst maður
að því áðan að maður hafði náttúrulega gleymt að bera sólarvörn á
ákveðna staði og útkoman varð sú að ég gæti auðveldlega eldað
þriggja rétta máltíð á bakinu á mér núna Vona samt að ég fái
ekki krabbamein alveg strax afþví að ég á ennþá eftir að taka 21
með Árnunum og 1 on 1 við Jón...
Jæjja þetta blogg er löngu komið útí öfgar
hvað orðafjölda varðar þannig að ég læt þetta gott heita í
bili
Sé ykkur bara hress í sumar, enda ekki
nema sirka 25 dagar þangað til maður kemur heim 
Adios, Þorsteinn
»
05.05.2006 01:17:47 / Thorsteinn
Vúbbsídeisí...Nánast mánuður
liðinn frá síðasta bloggi og margt og mikið hef á daga manns
drifið. Hvað það var nú nákvæmlega man maður nú ekki alveg í
öllum smáatriðum en kannski maður rifji nú upp þetta
helsta.
Jú ætli það hafi ekki verið svona 3-4
vikur síðan ég fór í þessa svona líka snilldar “senior trip” ferð.
Allir í svaka fíling þar sem allir höfðu lokið við sitt “senior
project” deginum áður. Ég hafði s.s. haldið 20 min. fyrirlestur um
stofnfrumur (stem cells) sem eru ósérhæfðar frumur sem geta skipt
sér í aðrar tegundir frumna líkamans. Allaveganna, það gekk bara
mjög vel en þetta var víst á fimmtudegi. Svo á föstudagsmorgninum
var mætt niðrí skóla um 7 leitið alveg svaka hress á því bara. Ég
lennti í bíl með snilldarfólki og verður þessum ökuferðum seint
gleymt þar sem við vorum næstum því búin að aka útaf svona 10
sinnum og brjáluð “rave” voru haldin oft á tíðum. En svona overall
þá heppnaðist þessi ferð bara mjög vel. Við fórum í klettaklifur
þarna á föstudeginum en svo í hellaskoðun á laugardeginum (miklu
skemmtilegra og erfiðara en þetta hljómar ) Svo var bara chillað á
mjög svo kósí stað þarna einhvers staðar uppí sveit.
Körfuboltavöllurinn var líka alveg að gera sig þar sem ég ownaði
ófáan drenginn.
En svo man ég voðalega lítið hvað ég
var að gera eftir þetta...Nema hvað að ég fór í 10 daga “spring
break” sem ég eyddi að mestu leiti í lærdóm sem maður sér kannski
smá eftir akkurat núna en nánar að því síðar...Svo var maður bara
að hanga með Ben og Kim
Síðustu helgi fór ég svo á hið
umtalaða “prom” en það á víst að vera svona aðalballið hérna úti.
Reyndar ekki svona “ball” eins og við Íslendingar skilgreinum það
heldur er þetta, eins og kannski flestir vita, mjög fínt ball þar
sem maður leigði tux og alles. Ég bauð bara Kim þarsem hún hafði
ekkert deit þannig að þetta var bara svona vinadeit. En við
byrjuðum kvöldið á því að stökkva útí bílinn hans Blakes sem var
einhver þvílíkur Benz sem hann hafði fengið að láni hjá pabba hans
(Pabbi hans er víst einhver milli og á einhverja einkaþotu og læti.
Hann á helling af bílaumboðum hérna úti...Tysinger heitir það víst)
Við stoppuðum í blómabúð og maður keypti blóm handa kim eins og
venjan er þó svo að ég hefði kannski átt að kaupa svona corsage
eins og flestir aðrir. En eins og flestir vita þá er maður soldið
viðutan og gleyminn. En maður reddar sér alltaf . Svo var haldið
á höfnina þar sem skipið var (Já, prom var um borð í skipi). Við
vorum víst öll að deyja úr hungri þannig að við ákváðum að fara á
Hooters. Þarna var markmiðinu mínu með þessari Ameríkuferð loksins
náð þar sem mig hafði alltaf dreymt um að fara á Hooters;p Neinei,
við pönntuðum okkur bara buffalo vængi en ég fékk ekki neitt afþví
að þurfti að fara í einhverja myndatöku . Við vorum svo þarna í
skipinu frá svona 8 til 11:30 þar sem var borðað, spjallað og
dansað..bara svaka stemmari=) Svo eftir það var haldið á
“after-prom” þarsem foreldrar eru víst búnir að undirbúa eitthvað
svaka dæmi fyrir alla krakkana (tilgangurinn er sá að krakkarnir
fari ekki eitthvert annað og drekki áfengi) En það var líka bara
snilld þarna. Þarna var svona mini casino, fullt af einhverjum
leikjum þar sem maður gat unnið fullt af stuffi (flatscreen, ipod
mini og PSP eru þrenn af þeim 29 verðlaunum) Ég hef náttúrulega
ekki unnið neitt (án þess að hafa fyrir því) alla mína ævi og ekki
breyttist það þetta kvöld. Ég var hins vegar bara í körfubolta mest
allt kvöldið þar sem þetta var haldið í eins konar íþróttasal.
Maður var svo komin heim um 4 leitið eftir mitt fyrsta, og síðasta,
vel heppnaða prom.
En eins og ég sagði áðan þá hafði ég
verið að læra alveg fullt yfir spring break fyrir þessi
fjarnámspróf sem ég þarf að taka fyrir Versló hérna úti. Ég
einbeitti mér nú meira að Líffræðinni þar sem ég hélt að það próf
væri 2 maí. Er svo búinn að vera að læra á fullu síðustu 2 dagana.
Örugglega búinn að læra allt sem hægt er að læra sem viðkemur
líffræði...Neinei. Sest ég ekki niður í fyrradag með prófið fyrir
framan mig og les “Nát123, Efni og Orka, Eðlisfræði” Það er s.s.
hitt fagið sem ég var bara svona rétt búinn að kíkja yfir og er
miklu erfiðara fag. Fyrir þá sem eru frekar slow, þá hafði ég sem
sagt verið að læra fyrir vitlaust próf allan tímann! Ég endaði
á því að taka prófið og er líklega fallinn...Það væri þá í fyrsta
skipti í langan tíma og allt útaf því að ég ruglaðist á nokkrum
tölustöfum...Nát123 – 2 maí, Nát103 – 11. maí. Freeekar
svekkjandi...Ég held þó að ég megi taka sjúkrapróf 15 maí...það er
eins gott
En jæjja...Ég ætla að halda áfram að
borða páskaeggið mitt sem fann í ískápnum hérna og fara að gera
eitthvað...eitthvað allt annað en að læra...
Kv, maðurinn sem kann ekki að lesa
próftöflu, Þorsteinn
»
01.04.2006 21:11:14 / Thorsteinn
Vildi bara lýsa yfir undrun minni á auglýsingum hérna í USA, og
þá sérstaklega lyfjaauglýsingum. Það er nefnilega í lögum hérna að
ef að þú ætlar að auglýsa eitthvað lyf þá verðuru að telja upp alla
mögulega "side-effects" og gera auglýsingarnar öllu áhugaverðari
fyrir vikið. Ég var t.d. að horfa á eina auglýsingu um daginn. Það
var byrjað á því að segja hversu hræðilegt það væri að vera með
einhver óþægindi sem koma þegar maður liggur of lengi í La-Z-boy
með fæturnar útí loftið...Ég man ekki nákvæmlega hvað þessi
"sjúkdómur" heitir en þetta fyrirtæki sem var að auglýsa átti
heldur betur til lausn á vandanum. Maður átti bara að taka eina
pillu á dag og þá væri allt í lagi. Ég hugsaði með mér "Ókei,
ábyggilega gott fyrir þá sem eru með þessi óþægindi".En neinei, ég
hafði heldur betur rangt fyrir mér þar. Næstu 20 sekúndurnar fóru í
að telja upp alla aukaverkanir. Þar á meðal voru hiti, niðurgangur,
þróttleysi, kláði og fullt meira. Maður mátti svo ekki keyra í
einhvern tíma eftir inntöku á þessum pillum...Allt til að laga
eitthvað sem mig minnir að hafi kallast "lazy-leg" eða einhvern
andskotinn Mér finnst þetta bara aðeins of fyndið og þetta er
alls ekki eina auglýsingin þar sem þetta kemur fyrir. Að
aukaverkanir eru helmingi alvarlegri en það sem lyfið á að laga.
Allaveganna, varð bara að koma þessu frá mér...Er farinn að horfa á
4 liða úrslitin í háskólaboltanum þar sem Florida Gators (mitt lið)
spilar við George Mason, og UCLA spilar við LSU.
P.s. ég var að lesa það í blaðinu áðan að það sé verið að
GEFA ís á bakkastöðum 93 í allan dag. Ef ég væri þú þá mundi ég
drífa mig þangað og fá mér ís.
Kveðja úr 20-og eitthvað stiga hita, Þorsteinn ;D
»
26.03.2006 21:40:47 / Thorsteinn
Skólinn minn leggur mikla áherslu á það að vera öðruvísi en
allir aðrir skólar. T.d. þurfa allir að gera svona senior project
og þurfa allir að flytja 15 min. fyrirlestur fyrir efribekkina um
sitt project. Svo er líka skylda að vinna 10 klukkutíma
sjálfboðavinnu í þágu þjóðfélagsins. Þetta tvennt sýgur feitan
þannig að skólinn þurfti að hafa eitthvað til að bæta okkur þetta
upp. Það gerir hann einmitt með því að leifa öllum seniors að hætta
í skólanum mun fyrr en allir, eða 12 maí. Svo fáum við líka tvö 10
daga frí eftir jól. Þannig að þetta jafnast bara vel út. En
allaveganna, það var líka svona "day of caring" um daginn þar sem
allir í skólanum eiga að tileinnka heilum skóladag í að hjálpa
öðrum (og nei þetta gildir ekki sem community service). Ég fór
allaveganna í grunnskóla ekki langt frá héðan þar sem ég átti bara
að lesa fyrir litla krakka skyldist mér. Ég endaði með einum félaga
mínum í einum 5. bekk þarna (4. bekkur á Íslandi) og við vorum bara
að fíflast í krökkunum þarna og jújú kannski hjálpa þeim eitthvað
en ég var ekki frá því að krakkarnir voru gáfaðari en ég. Þau voru
að læra það sama og ég lærði í jarðfræði í 4. bekk í Verzló. Við
spiluðum líka körfubolta við krakkana í frímó. Ég blokkaði einn
gaurinn feitast!! Þið hefðuð átt að sjá þetta, hann fór að grenja
og allt...Neinei ég var ekki svo vondur. En það fyndnasta við
þessa ferð var þegar ég var að tala við eina stelpuna þarna og ég
sagði henni að ég væri útlenskur og hún ætti að reyna að giska
hvaðan ég kæmi. Ég gaf henni vísbendingar eins og t.d. að þetta
væri frekar stór eyja. Nei hvað haldiði að stelpan hafi sagt ?
"You´re from Brazil!"...Sko, ef að ég hefði spurt frá hvaða landi
ég væri síst líklegur til að koma frá þá hefði þetta verið mjög
gott svar. En þar sem ég er eins hvítur og ljóshærður (og þar með
ekki með þetta hefbundna brasilíska lúkk) og mögulega hægt er að
vera, þá var þetta nú frekar fjarri lagi. Ég gaf henni nú annan
séns og hélt kannski að hún hafði mismælt sig eða eitthvað. Neinei,
það næsta sem hún segir er að ég líti alveg út eins og stóri bróðir
hennar. Jújú allt í lagi með það og er bróðir hennar ábyggilega
mjög kúl. "Yes, and he´s Japanese"...whaat. Lít ég virkilega út
fyrir að vera japanskur ? Þau kunna allt um jarðskorpurnar og
tegundir hafsbotna og ég veit ekki hvað og hvað, en þetta var víst
too much. Eftir margar vísbendingar og hjálp frá öðrum krökkum
komst hún að Grænlandi og þá ákvað ég ekki að kvelja hana
lengur.
Svo var eitthvað skólaball í gær. Man ekkert hvað það heitir
enda skiptir það heldur ekki öllu máli. Ég lærði náttúrulega af
meistaranum og aðal pimpinu Árna Þóri og yfirgaf húsið með þrjár í
takinu Við fórum á einhvern veitingastað svona 45 mín. í burtu.
Það var alveg ágætt fyrir utan það að ég fékk engu ráðið um
útvarpið. Og jeeeesús minn! Þetta var eins og FM95.7 í þriðja
veldi. Ég er nú alltaf að pæla í tónlist og komst að þeirri
niðustöðu að þessi tegund tónlistar er bara einn af mörgum sem hafa
þann tilgang að láta í ljós ákveðnar tilfinningar en þá sérstaklega
ákeðna ímynd. Tökum mansonista sem dæmi. Mikið af fólki sem klæðir
sig í leður frá toppi til táar og með svona 3 kíló af málmi í
andlitinu hlusta á dauðarokk. Tilviljun? Nei held ekki. Réttupphönd
þeir sem hafa séð mansonista hlusta á Justin timberlake eða
Boys2men og fíla það í tætlur. Ég hef allaveganna ekki séð það
áður Þetta er bara einhver tjáningarþörf sem fólk tekur út með
tónlistinni. En allaveganna, eftir endalaust af "Shake that thing"
og "Baby, you're so fine" setningar, þá enduðum við á ballinu í
skólanum. Þá hélt ég nú að þetta myndi skána og þetta yrði svona
eins og á Íslandi (s.s. góð tónlist) Ekki reyndist það rétt. Þetta
minnti mig alveg ólýsanlega mikið á böllin í Rimaskóla í svona 8-9
bekk Gaurar sitjandi útí horni, old-school poppsmellir, vangadans
og margt fleira skemmtilegt rifaðist allt upp fyrir manni. Þessi
skóli er reyndar soldið eins og grunnskóli á Íslandi enda skiptir
fólk ekki um skóla fyrr en 18 ára þarna í staðinn fyrir 16 ára
heima (10.bekkur) Þannig að það var kannski ekki skrítið að það var
svolítill þannig fílíngur.
En þar sem ég hef ekkert meira að skrifa um og er þess vegna
uppiskroppa með ástæður fyrir því að vera ekki að læra fyrir öll
mín 3 próf sem ég fer í á mánudaginn, þá segi ég þetta bara gott=)
En endilega komið með einhver komment og segið mér eitthvað
skemmtimlegt frá Íslandi ;D...Og já, gestur nr. 5000 fær verðlaun!

Adios, Þorsteinn
»
19.03.2006 19:17:20 / Thorsteinn
Já mér datt svona í hug að skella inn svona nokkrum setningum
sem lýsa þessum dögum sem hafa liðið síðan ég bloggaði síðast. Ókei
það var reyndar soldið langt síðan og þar sem ég man aldrei lengra
aftur í tímann en 1 viku þá verður þú bara að láta þér það duga. Ég
var sem sagt í 10 daga fríi frá skólanum sem var bara afskaplega
nice í alla staði. Fyrstu 7 dagana gerði ég nákvæmlega ekki neitt.
Öll mín orka fór í að einbeita mér að því að gera sem minnst og
heppnaðist það bara mjög vel. Fór reyndar í svona "picnic" og
borðaði fjöldann allan af peanuts með betty crocker kremi. Og nei,
mér leiddist ekki það mikið að ég fór einsamall í lautarferð. Það
var víst annað fólk þarna líka Það var þó meira í því að borða
nachos. En ok...Svo um helgina þ.e. föstudag, laugardag, og
sunnudag, fór ég og vinur minn hérna Ben í svona hiking. Þetta var
hugmyndin hennar Dr. Coldburn (mamma Ben) og hiking þýðir víst
göngutúr (fletti því upp í orðabók og allt) en þetta gengur víst út
á það að ganga upp fjöll eftir svona stígum og njóta sín í
náttúrunni. Jájá þetta var bara mjög gaman þar sem þetta voru ansi
magnaðir staðir. Þetta svæði er í svona 2 klukkutíma akstri héðan
þannig að við gistum á svona móteli í einhverjum eldgömlum bæ þarna
(samt ekki nógu gamall til að vanta McDonald´s).
Aallaveganna...nenni ekki að segja frá öllu enda held ég að það sé
ekkert kúl að segja frá öllum smáatriðum þegar maður er að blogga
um eitthvað sem maður var að gera...Og þar sem ég er kúl, þá læt ég
þetta gott heita.;p
Svo beið manni bara heil vika í skólanum en það var bara nice
þar sem maður var farinn að sakna þess að hafa eitthvað að gera á
daginn. Þessi vika var alveg snargeðveik þar sem March Madness
byrjaði á fimmtudaginn. Veðmál hægri vinstri, slagsmál og
rökfærslur einkenndu allar frímínútur og allir að fylla út sitt
"bracket" og spá um champion ( já þeir sem vita ekki hvað March
Madness er, þá er það bara svona "American" thing. Í stað þess að
vera heimsk og snargeðveik þjóð allt árið í kring þá ákvað
bandaríkjastjórn að setja það allt í einn mánuð þar sem allir mega
vera geðveikir, brjálaðir og/eða klikkaðir í mars. Þá tekur
fólk út sinn ársskammt af brjálæði og ró og friðsæld einkennir
restina af árinu...Djók!...March madness er
háskólakörfuboltaúrslitakeppnin (gangi öllum vel að finna lengra
orð en þetta)) En allaveganna ég spá Uconn sigri (University of
Connecticut)...Duke tapar á móti Texas...pottþétt.
Á föstudaginn var svona einhver hátíðardagur sem kallast St.
Patrick´s day (held ég) og hann snýst um að fagna því að fólk frá
Írlandi búi í bandaríkjunum. Ég held þó að þetta sé allt eitt stórt
samsæri þar sem einhver Boston celtics fan hafi búið til þennan dag
til að heilaþvo fólk til þess að stækka veldi celtic manna. Fór á
svona útítónleika og allt fólkið leit bókstaflega út eins og
dansglaðir Boston celtic aðdáendur. (Þeir sem vita eitthvað um
körfubolta ættu að fatta þetta...og þeir sem vita ekki mikið um
körfubolta...treystið mér bara, þetta er fyndið). En allaveganna,
ég fékk ýkt kúl hatt og var sáttur með köldið. Ég, Kim og Ben
enduðum svo bara á einhverju kaffihúsi þar sem við vorum bara að
rugla í afgreiðslufólkinu og það endaði með því að ég var byrjaður
að tala við einhvern Tony, svartur maður um fertugt, um víkinga og
hvernig þeir voru alltaf að drepa alla og svona. Kaffigaurinn gaf
okkur öllum svona espresso shot eða hvað sem þetta heitir og hef ég
aldrei á æfinni bragðað jafn mikinn viðbjóð...vildi bara vara fólk
við þessu
Á laugardaginn var ég svo að vinna frá 9-4 útí skóla. Ég var að
næla mér í mína "community service hours" sem eru víst 10 fyrir
þetta árið og þeir sem góðir eru í reikningi sjá að ég á þá aðeins
3 eftir sem er sweet. Gaurinn sem ég var að hjálpa var Breti og
helvíti nettur gaur. Fyrstu 20 mínúturnar skildi ég ekki orð af því
sem hann var að segja. Setningar eins og þessar voru ekki ótíðar
"Oy mate, could ya pass me the crag...cheers" og ímyndið ykkur
íktasta breska hreim í heimi. Ég lærði fullt af nýjum hlutum eins
og "cheers" þýðir takk, og "Ta" líka. Hins vegar er "Tata" bless
(hafði samt heyrt það áður)...uppáhalds orðið mitt er samt
"lads"..sem þýðir vinir eða félagar 
Í gærkvöldi fór ég bara til Williamsburg þar sem Rayna og
Caroline pikkuðu mig upp og við fórum til Ben´s. Þetta reyndist
verða ótrúlega leiðinlegt kvöld þar sem ekkert var að gera. Við
enduðum uppá dorminu hjá einhverjum félaga ben og horfðum á Team
America sem reyndist vera hin ágætasta skemmtun og það bjargaði
kvöldinu. Núna er ég svo bara að bíða eftir því að fara í eitthvað
svona körfuboltapartý á veitaingastaðnum Cheers. Þetta er víst það
síðasta sem við gerum sem lið og þetta verður ábyggilega bara
nice...
Þetta var s.s. síðustu 2 vikur hjá mér hérna í USA en ef ég skil
það rétt þá á ég ekki nema svona 9-10 eftir...En þangað til
næst...Peace =D
Þorsteinn
Lagið: In Space - Röyksopp
»
24.02.2006 20:24:02 / Thorsteinn
Ja thad er nu margt og mikid buid ad gerast fra thvi eg bloggadi
sidast...En ekki er thad neitt mjog merkilegt samt. Timabilid buid
eftir ad vid topudum a moti Walsingham 2x...Fyrst a heimavelli i
framlengingu thar sem vid vorum 2 stigum yfir thegar 6 sek. voru
eftir. Mig minnir ad vid hofum ekki skorad neitt i
framlengingunni ...Svo topudum vid aftur naumlega a utivelli i 8
lida urslitum a moti theim aftur og duttum thaf af leidandi utur
TCIS kepninni. Mér var sagt að ég hafði verið valinn í 2.
stjörnulið deildarinnar. Sem sagt ekki topp10 en allaveganna topp18
í deildinni. Ekkert að svekkja mig á því enda ekkert búinn að spila
neitt stórkostlega í vetur ef maður á að vera hreinskilinn...bara
svona alltílæææ En þetta er buid ad vera
erfitt,skemmtilegt,ahugavert,svekkjandi,laerdomsrikt,odruvisi og
spennandi timabil allt i senn. Nuna er bara timi fyrir sma hvild og
svo verdur tekid alvarlega a thvi i lyftingunum 
HRA (skolinn minn) heldur TCIS keppnina herna i ithrottahusinu
thannig ad i dag verdur horft a 4 lida urslitin klukkan 5 og svo
klukkan 8 held eg. Vinningslidin munu svo eigast vid annad kvold
(laugardagur). Eg spai Norfolk Collegiate sigri i thessu moti en
their unnu okkur frekar stort enda med rugl godan "dripplara" sem
er svona 2 metrar (svona Pavel daemi nema med betra skot og meiri
ithrottamadur...kannski ekki jafn godur i sendingum samt) Svo eru
their med annan leikmann sem spilar senterinn sem kemur engum a
ovart enda sirka 213 cm...og svona 2 Aglar a thyngd (their sem aefa
korfu skilja hvad eg meina)...Best vaeri ad likja honum vid Shaq.
Hann trod allaveganna svona 4x a moti okkur eftir soknarfrakast. En
svo forum vid i lidinu lika ad horfa a state championship motid sem
er eftir eina viku. Thar verda fullt af alvoru lidum og verdur
gaman ad horfa a klassa korfubolta.
En annars er allt med rolegra motinu fyrir utan korfuboltann
enda host-fjolskyldan ekkert aest yfir thvi ad breyta af sinum vana
og gera eitthvad skemmtilegt ef thid skiljid hvad eg meina...En
thad er bara theirra "thing" og ekkert ut a thad a setja =) Madur
mun bara haf nog ad gera med laerdom, lyftingar og eitthvad fleira
skemmtilegt.En aetla ekki ad hafa thetta lengra i bili enda nenni
eg ekki ad hanga herna inni tolvustofunni ollu lengur. Aetla ad fa
mer i svanginn og kikja eitthvad a thessa leiki uti
ithrottahusi...Peace!
Thorsteinn
-
Just as he hit
The ground
They lowered a tow that
Stuck in his neck to the gills
Fragments of sobriquets
riddle me this
three half eaten corneas
who hit the aureole
Stalk the ground
Stalk the ground
You should have seen
The curse that flew right by you
Page of concrete
Stained walks crutch in hobbled sway
Auto-da-fé
A capillary hint of red
Only this manupod
Crescent in shape has escaped
The house half the way
Fell empty with teeth
That split both his lips
Mark these words
One day this chalk outline will circle this city
Was he robbed of the asphalt that cushioned his face
A room colored charlatan
Hid in a safe
Stalk the ground
Stalk the ground
You should have seen
The curse that flew right by you
Page of concrete
Stain walks crutch in hobbled sway
Auto-da-fé
A capillary hint of red
Only this manupod
Crescent in shape has escaped
Pull the pins
Save your grace
Mark these words
On his grave
You should have seen
The curse that flew right by you
Page of concrete
Stain walks crutch in hobbled sway
Auto-da-fé
A capillary hint of red
Everyone knows the last toes are
Always the coldest to go
Televators - The Mars Volta
»
09.02.2006 22:44:32 / Thorsteinn
Ég steig á vigt í annað skipti síðan ég kom hingað...Er búinn að
léttast um tæp 17 pund! þetta gengur ekki
»
09.02.2006 02:15:17 / Thorsteinn
Jæjja frekar langt síðan ég bloggaði síðast en auðvitað hef ég
mínar ástæður...Ég gæti bara lýst einum degi hjá mér hérna úti og
þið gætuð bara margfaldað hann með svona þrjátíu af því að allir
dagar eru nánast eins. Þess vegna er augljóst að það er algjör
óþarfi fyrir mig að blogga meira en einu sinni í mánuði...
Já eins og fyrr var gefið í skyn, þá er voðalega fátt að frétta
af mér. Það helsta er þó kannski að við eigum bara svona 3-5 leiki
eftir á tímabilinu sem endar í þessum mánuði, ég er víst að fara í
sirkus einhverntíman á næstunni, ég var að kaupa mér prótínstangir,
ég fékk mér ekki venjulegt cheerios í morgunmat um helgina heldur
fékk ég mér special K (red berries), ég breytti um skjámynd í
símanum mínum áðan, og svo er ég líka orðinn yfirþyrmandi
hæfileikaríkt ljóðskáld. Já en ekki má gleyma því að ég er víst á
leiðinni til Florida í sumar með Familyunni minni, Jóni Oddi og
Evu, Árna þóri , og Árna Ragnarssyni...sem er baara sweeeet Þá
verður skoðað nýja húsið og ég heyrði að Jón Oddur og Eva leigðu
hús þarna stutt hjá...enn og aftur...sweeet.
Ok svo er líka eitt ýýýkt svekkjandi. Venjan er sú að hver
"class" eða árgangur í skólanum fer í einhvers konar ferðalag í
apríl eða maí. Það er ekki frásögu færandi nema hvað að Juniors
fara til Philadelphia og horfa á NBA leik !...Við efribekkingarnir
förum í klettaklifur og hellaskoðun...Ok það gæti alveg verið gaman
en frekar kysi ég NBA leik og chill í Philadelphia  En ég nenni
enganveginn að skrifa um alla körfuboltaleikina sem að ég hef
spilað hérna þannig að þeir sem vilja eitthvað vita um það tjekkið
bara á mér á msn eða komið bara í heimsókn og við getum átt gott
spjall yfir kaffibolla.
Eeen þar til næst...takk fyrir kex
Þorsteinn =)
Are you
such a dreamer
To put the world to rights
I'll stay home forever
Where two and two always makes a five
I'll lay down the tracks
Sandbag and hide
January has April showers
And two and two always makes a five
It's the devil's way now
There is no way out
You can scream and you can shout
It is too late now
Because you're not there
Payin' attention...
Radiohead - 2+2=5
»
19.01.2006 00:18:27 / Thorsteinn
Ákvað að skella inn nýrri færslu í tilefni þess að það sé alveg
að koma fimmtudagur =) Við erum búnir að hafa þó nokkuð að gera í
körfunni og spiluðum einn leik á föstudaginn síðasta, einn á
laugardaginn og svo einn núna á þriðjudaginn. Við byrjuðum á því að
spila á móti PC en það lið átti ekki að vera uppá marga fiska
heyrði maður fyrir leikinn. Leikurinn byrjaði samt frekar jafn og
við vorum bara yfir með svona 6 stigum í hálfleik. Við tókum þetta
svo bara í seinni hálfleiknum og enduðum þetta circa 20 stigum
yfir. Ég átti bara þokkalegan leik með svona 10 stig, 15 fráköst,
3-4 blokk og einhverjar stoðsendingar og stolna bolta...Já svona er
að vera bara center En það sem var skemmtilegast við þennan leik
var gymmið eða íþróttahúsið á íslensku. Það var alveg góður fjöldi
á leiknum (kannski svona +-200) en bergmálið var svo mikið að maður
heyrði ekki neitt af því sem átti sér stað inni á vellinum.
Þjálfarinn gat bara gleymt því að öskra eitthvað af
hliðarlínunni...Þessi leikur einkenndist því af táknmáli og
líkamstjáningu 
Kepptum svo við Trinity á Laugardaginn. Þeir eru sagðir bara
nokkuð góðir og þeir unnu meðal annars mótið sem að þeir héldu fyrr
á tímabilinu. Það skemmtilegasta við þennan leik var kannski að
spila í fyrsta skipti á móti Íslendingi síðan maður koma hingað.
Gummi er nefnilega í Trinity og við báðir í okkar byrjunarliðum.
Ekki var þetta besti leikur okkar beggja en leikurinn endaði með 13
stiga sigri Trinity og fannst mér okkar menn vera arfaslappir þó
svo að maður reyndi að ná upp einhverri stemningu og orku í seinni
hálfleik. Allt kom fyrir ekki...
Við unnum svo leikinn á þriðjudaginn einnig frekar létt, eða með
svona 20 stigum líka. Ég byrjaði frekar vel og skoraði einhver 7
stig á fyrstu 3 mínútunum. Verst var að ég hafði náð mér í
einhverja hálsbólgu og þolið því ekki í lagi þannig að ég þurfti
alltaf að hvíla mig inná milli. Svo þegar ég fiskaði ruðning lenti
ég eitthvað asnalega og meiddist...Svekkjandi það. Endaði með
einhver 13 stig, 7 stolna bolta og eitthvað af fráköstum. Við fáum
nefnilega aldrei að sjá stattið hérna þannig að ég veit ekkert
nákvæmlega...Fæ bara stundum að heyra eitthvað af því að host-mamma
mín sér um stattið =)
Var svo bara að koma af æfingu núna og er að fara að horfa á
Duke spila og borða pizzu Ekkert stórfenglegt að frétta af mér
svona annars þannig að ég segi þessari uppfærslu á lífinu hér í usa
lokið =)
have a nice day, Þorsteinn
»
05.01.2006 02:24:13 / Thorsteinn
Trúin er deyfingalyf sem
mannsheilinn framleiðir og notar á sjálfan sig. Náttúran leitar ávallt leiða
til þess að aðlaga allt líf af umhverfinu. Mannsheilinn er
engin undantekning og hefur þróunin leitt til þess að gera
mannsheilanum kleift að deyða sjálfan sig frá veruleikanum.
Greind mannsheilans hefur risið yfir ákveðið hámark þar sem hún
er farin að hafa öfug áhrif. Trú er lyfið, og einnig framleiðsla
mannsheilans, sem
vegur á móti greind mannsheilans eða deyfir hana að vissu
leyti og dregur þannig úr aukaverkunum hennar
(greindarinnar). Hægt er að lifa með aukaverkunum en er það
betra ? Það er stóra spurningin. Á meðan uppskurðinum stendur,
viltu vera án deyfingarlyfja svo þú sért meðvitaðari um aðgerðir
uppskurðsins eða kýstu deyfingu þar sem þú rankar bara við þér í
umbúðunum ? Já eða bara vaknar ekkert... Bara
pæling...
?
Vildi bara svona rétt láta heyra í mér á nýju ári og vil byrja
færsluna á því að óska öllum færsældar og hamingju á nýju ári.
Auðvitað er þessi ósk í bjartsýnari kanntinum en það sakar aldrei
að reyna =) Jólafríið búið að vera mjög rólegt og notalegt
bara...ekkert mikið gert á gamlárskvöldinu enda lítið að gerast
hérna...Bara chillað með nokkrum félögum og horft áramótaþætti og
spilað X-box 360, sem er algjör snilld btw... En þetta ár byrjar af
krafti í skólanum. Ég er skipti "Art" út fyrir "Creative writing"
og svo skipti ég "Mythology" fyrir "Government"...Ég er frekar
spenntur fyrir þessum svokallaða skapandi skriftar áfanga...En það
sama get ég ekki sagt um bandaríska ríkisstjórn. Nú þegar veit ég
meira um bandaríska sögu og ríkisstjórn en íslenska. En eins og
maður hefur sagt svona milljón sinnum síðan maður kom hingað:
Alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt ...Æfingar líka byrjaðar af
krafti og styrktist hópurinn aðeins þegar buðum kappa frá Króatíu
velkominn í liðshópinn. Hann er um 6"6 og aðeins stærri en ég þó
það vanti nú kjötið utaná drenginn...Enda 2 árum yngri en ég. Næsti
leikur á föstudaginn og hef ég heyrt að hann gæti reynst erfiður.
Satt að segja heyrist mér að flestir leikir sem eftir eru eiga að
vera erfiðir...En við "could win" og við "have a chance" eins og
þjálfarinn orðaði það. Sjáum bara til hvernig þetta fer allta saman
=)
Ekki lengra í bili...Hafið það bara fínt...nei tek það til
baka...hafið það frábært!;D
Kv. Þorsteinn
»
25.12.2005 02:39:06 / Thorsteinn
Núna þegar þetta er skrifað þá eru flestir búnir að opna alla
sína pakka. NEMA ÉG ...Já frekar svekkjandi fyrir ykkur öll á
Íslandi að jólin séu bara nánast búin en jólin hjá mér ekki
byrjuð...Frekar ÝKT svekkjandi ætti meira að segja betur
við...Vildi bara koma þessu á framfæri...Takk fyrir kex
Þorsteinn
»
21.12.2005 02:34:55 / Thorsteinn
Já maður var að koma heim eftir langt ferðalag til
South-Carolina, Charleston. Þetta var vægast sagt snilldarferð en
ég nenni ekki telja upp allt sem að við gerðum þannig að ég gef
bara úrdrátt. Basically þá unnum við 2 leiki og töpuðum 2. Mér gekk
þokkalega í flestum leikjum en var með eitthvað skrambans kvef. Svo
var bara chillað á hótelinu, rölt um bæinn, X-boxast, út að borða,
horfa á aðra leiki og fleira...Sem sagt bara mjög góð ferð og
allt gott að frétta af mér. En nóg um mig...Hvernig hefur þú
það ?
»
09.12.2005 20:48:18 / Thorsteinn
Ja nuna er klukkan ad renna i 4 herna a fostudegi og leikur a
eftir klukkan 7. Fyrsti leikurinn okkar a fostudegi og a
heimavelli. Tha koma alltaf slatti af folki og likleg fullt hus
Lika adeins odruvisi thegar eitthvad folk sem ad eg thekki ekki
baun labbar ad manni og oskar manni gods gengis i leiknum i
kvold...En thetta er bara gaman...Profin byrja naesta manudag og
thad kemur bara ljost hvernig thad gengur allt saman...Ef ad thid
sjaid mig i Grafarvoginum um jolin tha hef eg liklega fallid i
einhverju herna ...En strax eftir sidasta profid forum vid (lidid)
til Charleston sem er u.th.b. 7 klukkutimum i burtu hedan
(keyrandi). verdum thar i 4 daga og keppum 4 leiki. Verdur
abyggilega ykt nett enda gistum vid a finu hoteli og verdum bara i
chillinu i sweet-unum okkar ;D. Keppum vid helviti god lid thar en
vid erum sidustu 2 leikir hja okkur hafa verid frekar lettir og vid
unnum tha bada med svona 20 stigum. En hey...veit einhver hver
Bruce Hornseby er? Allaveganna their sem ad vita thad tha aetladi
eg bara adeins ad monnta mig...thvi ad eg taladi vid hann i svona
godar 10 min. um daginn. Ja og their sem ad vita ekki hver thad er
tha thekkidi samt pottthett lagid med Tupac - Changes. Hann samdi
allaveganna thad lag (s.s. tupac tok bara thetta lag og breytti
thvi adeins og rappadi inna thad)...Hann er allaveganna nokkud
fraegur herna i USA ...En allaveganna...Thessi vika er buin ad
vera algjor daudi en thid vorkennid mer kannski ekkert enda flestir
a klakanum i profum nuna held eg Allaveganna endalaust af
ritgerdum og svo helt eg 15 min. fyrirlestur adan um ahrif
fjolmidla a mannkynid. Gerist ekki betra ;p...Bara ein vika eftir
og svo fri ...
Vil lika leggja fram kvortun til guds. Hvada andskotans vitleysa
var thad ad lata Arna fara aftur ur axlarlid ? Hvad gerdi hann ther
eiginlega ? ha ? ...Thu matt fara ad passa thig...Sem betur
fer er Arni stor og sterkur strakur og eg hef meira ad segja heyrt
sogur um ad hann se ad worke-a biceppinn i laumi thratt fyrir
fatlann.
Hef allaveganna vodalega litid ad segja akkurat nuna en akvad
bara ad skella inn einni tilgangslausri faerslu svona i tilefni
profanna. Eg segi bara GL og HF i profunum ..Takk fyrir kex...
Tossi
»
Síður: 1 2 3
|
|